Hlustun – Ég skil algeng orð og einfaldar setningar um sjálfa(n) mig, fjölskyldu mína og nánasta umhverfi þegar fólk talar hægt og skýrt.
Lestur – Eg get lesid kunnugleg nöfn, orð og mjög einfaldar setningar, t.d. á skiltum og veggspjöldum eða í bæklingum.
Samskipti – Ég get tekið pátt i einföldum samræðum ef hinn aðilinn er reiðubúinn að endurtaka eða umorða hluti hægt og hjálpa mér að koma orðum að pví sem ég er að reyna að segja. Ég get spurt og svarað einföldum, algengum spurningum og spurningum um kunnug málefni.
Frásögn – Ég get notað einföld orðasambönd og setningar til þess að segja frá búsetu minni og fólki sem ég pekki.
Ritun – Ég get skrifað stutt, einfalt póstkort, t.d. sent stuttar kveðjur úr leyfi. Ég get fyllt út eyðublöð með persónulegum upplýsingum eins og nafni, þjóðerni og heimilisfangi á skráningareyðublöð um hótela.
Hlustun – Ég skil setningar og algeng orð sem tengjast mér persónulega (t.d. persónulegar upplýsingar um mig og fjölskyldu mína, innkaup, nánasta umhverfi og atvinnu). Ég get skilið aðalatriðin i stuttum, skýrum og einföldum skilaboðum og tilkynningum.
Lestur – Ég get lesið stutta og einfalda texta. Ég get fundið tilteknar, fyrirsjáanlegar upplýsingar i einföldu, hversdagslegu efni, t.d. í auglýsingum, kynningarbæklingum, matseðlum og tímatöflum. Ég get líka lesið stutt og einföld bréf.
Samskipti – Ég get tjáð mig um einföld og fastmótuð verkefni sem
þarfnast einfaldra og beinna tjáskipta um efni sem ég þekki. Ég get átt einföld orðaskipti á félagslegum vettvangi, jafnvel þótt ég skilji ekki nóg til að halda samræðum gangandi sjálf(ur).
Frásögn – Ég get myndað nokkrar setningar til pess að lýsa fjölskyldu minni og öðru fólki á einfaldan hátt, sagt frá búsetu minni, menntun og þeirri vinnu sem ég stunda eða hef stundað.
Ritun – Ég get skrifað stutta minnispunkta og skilaboð. Eg get skrifa mjög einfalt bréf, t.d. bakkarbréf.
Hlustun – Ég skil aðalatriði venjulegs talmáls um efni sem ég þekki
og tengjast vinnu minni, skóla, frístundum o.p.h. Ég get skilið i grófum dráttum aðalatriði i mörgum útvarps- og sjónvarpsþáttum um málefni líðandi stundar eda efni sem tengjast mér persónulega eða faglega þegar talað er tiltölulega hægt og skýrt.
Lestur – Ég get lesið texta sem innihalda aðallega algeng orð úr daglegu lífi ea orðaforða sem tengist atvinnu minni. Ég skil lýsingar á atburðum, tilfinningum og óskum i persónulegum bréfum.
Samskipti – Ég get tekist á við flestar aðstæður sem geta komið upp á ferðalagi um svæði þar sem málið er talað. Ég get óundirbúin(n) tekið þátt i samræðum um efni sem ég þekki, hef huga á eða tengjast daglegu lífi (t.d. fjölskyldu, áhugamálum, starfi, ferðalögum og málefnum líðandi stundar.)
Frásögn – Ég get tengt saman orðasambönd á einfaldan hátt til pess að lýsa reynslu og atburðum, draumum mínum, væntingum og framtíðaráformum. Ég get rökstutt stuttlega og útskýrt ákvarðanir mínar og fyrirætlanir. Ég get sagt sögu eða sagt frá söguþræði i bók eða kvikmynd og lýst viðbrögðum mínum.
Ritun – Ég get skrifað einfaldan samfelldan texta um efni sem ég þekki eða hef áhuga á. Ég get skrifað bréf sem lýsa reynslu og hughrifum.
Hlustun – Ég skil langt mál og fyrirlestra og get fylgst með frekar flóknum rökræðum ef efnið er mér kunnugt. Ég get skilið fréttir og flesta sjónvarpsþætti með fréttatengdu efni. Ég get skilið flestar kvikmyndir á stöðluðum mállýskum.
Lestur – Ég get lesið greinar og skýrslur sem tengjast vandamálum samtímans þar sem fram koma ákveðin viðhorf eða skoðanir. Ég skil texta i samtímabókmenntum.
Samskipti – Ég get tekið þátt í samræðum af nokkru öryggi og án mikillar umhugsunar í reglulegum samskiptum við þá sem hafa málið að móðurmáli. Ég get tekið virkan þátt í umræðum um kunnugleg málefni, gert grein fyrir og haldið mínum skoðunum á lofti.
Frásögn – Ég get gefið skýra, nákvæma lýsingu um ýmsum hlutum
sem tengjast mínu áhugasviði. Eg get útskýrt skoðanir mínar á málefnum sem eru ofarlega á baugi og lýst bæði kostum og göllum við mismunandi valkosti.
Ritun – Ég get skrifað skýra, nákvæma texta um ýmis efni sem tengjast áhugasviði mínu. Ég get skrifað ritgerð eða skýrslu, komið upplýsingum á framfæri eða fært rök fyrir eða gegn ákveðnu sjónarhorni. Ég get skrifað bréf
og lagt áherslu á mikilvægi ýmissa atburða og reynslu.
Hlustun – Ég skil langan málflutning jafnvel þegar talað er óskipulega og þegar samhengi er einungis gefið i skyn en ekki nákvæmlega skýrt tilgreint. Ég get skilið sjónvarpsþætti og kvikmyndir án mikilla erfiðleika.
Lestur – Ég get lesið langa og flókna texta og bókmenntaverk og get greint stílbrigði. Ég get lesið sérfræðigreinar og lengri tæknileiðbeiningar, jafnvel þótt það tengist ekki mínu sérsviði.
Samskipti – Ég get tjáð mig af öryggi og án mikillar umhugsunar eða orðaleitar. Ég get notað málið á sveigjanlegan og áhrifaríkan hátt bæði í félagslegum og faglegum tilgangi. Ég get sett fram hugmyndir mínar og skoðanir af nákvæmni og komið þeim kunnáttusamlega til annarra.
Frásögn – Ég get gefið skýrar, nákvæmar lýsingar á flóknum málefnum í mörgum liðum, rætt ákveðin atriði og dregið saman í viðeigandi niðurstöður.
Ritun – Ég get tjáð mig skriflega með skýrum og vel samsettum texta af tiltekinni lengd og komið þannig ákveðinni skoðun á framfæri. Ég get skrifað um flókin efni i bréfi, ritgerð eða skýrslu og lagt áherslu það sem ég tel vera mikilvæg málefni. Ég get valið mér ritstíl sem hentar þeim lesendahópi sem ég hef i huga.
Hlustun – Ég á ekki i neinum erfiðleikum með að skiljia fólk hvort heldur pegar það talar eða þegar talað er i útvarpi / sjónvarpi, jafnvel þegar talað er hratt af þeim sem hafa tungumálið að móðurmáli, svo fremi sem ég hef fengið tíma til að venjast mál-hreimnum.
Lestur – Ég get auðveldlega lesið nánast allar gerðir skrifaðs
máls, þar með talið fræðilega texta, setningafræðilega eða málfræðilega flókna texta eins og handbækur, sérfræðigreinar og bókmenntaverk.
Samskipti – Ég get auðveldlega tekið þátt í öllum samræðum og
umræðum með því að beita orðatiltækjum. Ég get tjáð mig af öryggi og komið finni merkingartilbrigðum til skila. Ef ég lendi í vandræðum get
ég farið til baka og umorðað setninguna á svo hárfínan hátt að varla sé eftir því tekið.
Frásögn – Ég get gefið skýrar, nákvæmar lýsingar á flóknum málefnum í mörgum liðum, rætt ákveðin atriði og dregið saman í viðeigandi niðurstöður.
Ritun – Ég get á skýran hátt og reiprennandi gefið lýsingu á
eða rökrætt á þann hátt sem hentar samhenginu og notað málið á áhrifaríkan hátt til að hjálpa þeim sem hlustar að taka eftir og leggja mikilvæg atriði á minnið.