Talþjálfun „Spjöllum saman”

Talþjálfun „Spjöllum saman”

Fjárnám
Lengd: 20 kennslutímar (20×40 mín)
Verð: 35.000kr
Tímabil: 29. okt. – 25. nóv. 2026
Hvenær: mánudaga og miðvikudaga 19:30-21:00
Forkröfur fyrir þetta 20 kennslutíma námskeið eru að nemendur hafi lokið íslensku á A1.1, A1.2 og A2.1a  eða hafi öðlast sambærilega kunnáttu.
  • Námsmat til að fá útskriftarskírteini:
    Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Ef nemandi hyggst sækja um ótímabundinn dvalarleyfi á Íslandi  hjá  ÚTL þarf mætingin að vera 85% minnst. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu. 
  • Fyrir hverja:
    Forkröfur fyrir þetta 20 kennslustunda námskeið eru að nemendur hafi lokið íslensku á stigum A1.1, A1.2 og A2.1a eða hafi öðlast sambærilega kunnáttu. Námskeiðið hentar þeim sem vilja bæta færni sína í tali, frásögn og framburði í daglegum samskiptum. 
  • Markmið:
    Markmiðið er að þjálfa þátttakendur í samræðum og frásögn í mismunandi aðstæðum, skerpa á framburði, setningafræði og grunnmálfræði, og efla orðaforða. Lögð er áhersla á að nota íslensku í lifandi samskiptum og að nemendur verði öruggari í að tjá sig. 
  • Á námskeiðinu verður fjallað um:
    • frásögn og samræður í mismunandi aðstæðum, 
    • þjálfun í framburði og hreim,
    • grunnatriði í setningagerð og málfræði, 
    • orðaforða sem nýtist í daglegu lífi og starfi, 
    • munnlegar æfingar og frásagnir um áhugaverð málefni, 
    • fjölbreyttar kennsluaðferðir sem koma til móts við þarfir þátttakenda.
  • Aðrar upplýsingar:
    Kennslan byggist á samtölum, hlustunaræfingum og hagnýtum verkefnum sem tengjast raunverulegum aðstæðum. Lögð er áhersla á virka þátttöku og einstaklingsmiðaða leiðsögn kennara.