Námskeiðslýsing
Öll íslenskunámskeið Liberis Fræðslumiðstöðvar fylgja námská Menntamálaráðuneytis í íslensku fyrir útlendinga.
ÍSLENSKA STIG 1 (A1.1)
Námskeið á 1 stigi er ætlað byrjendum þar sem nemendur læra íslenska stafrófið, framburð og grunnorðaforða. Nemendur æfa sig í að tala, skilja, lesa og skrifa grunnsetningar með fjölbreyttum námsaðferðum. Grunnmálfræði er kynnt í tengslum við námsefnið og nemendur fá þjálfun í framburði.
ÍSLENSKA STIG 2 (A1.2)
Námskeiðið er framhald af fyrsta stigi og hentar einnig þeim sem hafa öðlast grunnfærni í íslensku. Orðaforði er aukinn með það að markmiði að nemendur verði færir um að nota einfaldar setningar sem tengjast daglegu lífi. Orðaforði er tengdur vinnu, fjölskyldu, áhugamálum, heimili og daglegum athöfnum. Lögðer áhersla á tal, skilning, lestur og skrift með áherslu á daglegt mál með fjölbreyttum kennsluaðferðum. Aukið er við málfræðikunnáttu í tengslum við námsefnið.
ÍSLENSKA STIG 3 (A2.1)
Námskeiðið er framhald af íslensku 2 og hentar einnig þeim sem hafa öðlast grunnfærni í íslensku sem nemar á fyrsta og öðru stigi. Kenndur er orðaforði tengdur daglegu lífi og starfi einstaklings. Einnig er lögð áhersla á að kynna íslenskt samfélag. Sjálfstraust nemenda til að tjá sig á íslensku eykst með áframhaldandi þjálfun í að tala, skilja, lesa og rita íslensku með fjölbreyttum kennsluaðferðum. Framhald á málfræðináminu.
ÍSLENSKA STIG 4 (A2.2)
Námskeiðið er framhald af þriðja stigi og hentar einnig þeim sem öðlast hafa sterkan grunn í íslensku. Enn er aukið við orðaforða með umfjöllunarefnum sem tengjast því að búa á Íslandi og samfélagsumræðunni á hverjum tíma. Fjölbreyttum kennsluaðferðum í tungumálakennslu er beitt. Þjálfun í ritfærni eykst. Aukið er við málfræðikunnáttu á grunni þess sem nemendur hafa nú þegar lært.
ÍSLENSKA STIG 5 (B1.1)
Námskeiðið er framhald af fjórða stigi. Þessi námskeið miðast við þarfir þeirra sem hafa nokkuð góðan grunn í tungumálinu. Við höldum áfram að einblína á þætti sem tengjast daglegu lífi og fjölskylduþörfum. Leitast er við að efla málskilning nemenda í aðstæðum sem upp kunna að koma í starfi, skóla og daglegu lífi. Við leggjum áherslu á hæfni þátttakenda til að tjá tilfinningar sínar og skoðanir sem miðar að því að bæta tungumálakunnáttu og auka sjálfstraust. Þegar við þróum talað mál þróum við lestrar- og ritfærni ásamt málfræðilegum þáttum.
Íslenska fyrir starfsfólk skóla og leikskóla 1-2
Námskeiðið miðar að því að bæta orðaforða á skóla- og leikskólasviði. Farið var ítarlega í hagnýtan grunnorðaforða tengdan börnum, umhverfinu, klæðnaði, matarvenjum og líðan barna. Áhersla lögð á samskipti við börn, foreldra og samstarfsfólk á vinnustað. Áhersla er lögð á að undirbúa þátttakendur til starfa og virkrar þátttöku í atvinnulífi með íslensku á grunn- og leikskólastigi í forgrunni. Fjölbreytt þjálfun í helstu þáttum tungumálsins. Málfræði samofin í samræmi við hæfniþrep.
Íslenska fyrir skóla- og leikskólastarfsmenn, stig 2-3 með inngangi að sjálfstyrkingu
Framhald á námskeiðinu “Grunníslenska fyrir starfsmenn skóla og leikskóla stig 1-2”. Markmið námskeiðsins er að bæta og auka orðaforða sem notaður er í skóla og leikskólum. Á námskeiðinu er ítarleg umfjöllun um hagnýtan orðaforða sem tengist daglegum störfum í starfi. Lögð er áhersla á samskipti við börn, foreldra og samstarfsfólk á vinnustað. Farið er í helstu atriði sjálfstyrkingar með það að markmiðið að þátttakendur lærðu að efla sjálfsmynd sína ásamt því að styrkja fólk í almennum samskiptum, á vinnustað, við maka, fjölskyldumeðlimi o.s.fr.. Málfræði er samþætt í samræmi við færni og þekkingarstig nemenda.
Talþjálfun „Spjöllum saman”
Áhersla er lögð á að þjálfa þátttakendur í samræðum og frásögn í mismunandi aðstæðum. Námsefni og aðferðir eru sérsmiðaðar til að koma til móts við þarfir þátttakenda
Forkröfur fyrir þetta 20 kennslutíma námskeið eru að nemendur hafi lokið íslensku á stigum 1, 2 og 3 eða hafi öðlast sambærilega kunnáttu. Áhersla er lögð á að þjálfa færni í frásögn og samræðum í mismunandi aðstæðum þar sem skerpt er á framburði, setningafræði og grundvallarmálfræði. Nemendur þjálfa samræður um áhugaverð málefni gegnum fjölbreytta nálgun frá kennara.
Undirbúningsnámskeið fyrir íslenskupróf vegna ríkisborgararéttar
Meginmarkmið námskeiðsins er að aðstoða við að undirbúa þátttakendur fyrir íslenskuprófið sem er partr í því ferli að sækja um íslenskan ríkisborgararétt. Við leggjum mesta áherslu á orðaforða og orðasambönd úr daglegu lífi eins og skóla, vinnu og fl. Nemandi lærir orðaforða til að auðvelda honum að taka þátt í einföldum umræðum um hversdagsleg efni. Að auki munum við æfa rétta stafsetningu, hlustunarskilning og málfræði.
Til að taka þátt í þessu námskeiði þarf að hafa lokið 1. og 2. þrepi í íslensku eða öðlast sambærilega færni.