Íslenska fyrir skóla og leikskólastarfsmenn

Íslenska fyrir skóla- og leikskólastarfsmenn A1.1-A1.2
Staðnám/fjarnám
Lengd: 60 kennslutímar (60×40 mín) 
Verð: 55.000kr
Tímabil: 5. janúar – 11. mars 2026
Hvenær: mánudaga og miðvikudaga 19:30-21:30
- Námsmat til að fá útskriftarskírteini:
Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu.
- Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla og grunnskóla sem vill bæta færni sína í íslensku og nota tungumálið í daglegum samskiptum við börn, foreldra og samstarfsfólk. Námið hentar sérstaklega þeim sem eru á byrjunarstigi (A1.1–A1.2).
- Markmið:
Markmiðið er að byggja upp traustan grunn í íslensku, efla sjálfstraust í tali og skilningi og auka hæfni þátttakenda til að nota íslensku í daglegu starfi og í samskiptum innan skólasamfélagsins.
- Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi atriði:
• orðaforða tengdan fötum, litum og daglegum aðstæðum barna.
• matur, hlutir í matartíma og samskipti tengd borðhaldi.
• leikur og starf – sagnorð og orðaforði sem tengjast leik og námi.
• tilfinningar og líðan – að tjá og skilja einfaldar tilfinningar.
• mikilvæg hugtök og spurningar sem nýtast í starfi leik- og grunnskóla.
- Aðrar upplýsingar:
Áhersla er lögð á virka þátttöku og raunhæfar æfingar sem tengjast daglegum verkefnum á vinnustað. Notaðar eru hljóðupptökur, myndir, samskiptaæfingar og hópavinna. Kennslan fer fram á einföldu og skýru máli og tengir fræði við hagnýta notkun.
Íslenska fyrir skóla- og leikskólastarfsmenn A2.1a-A2.1b
Staðnám/fjarnám
Lengd: 60 kennslutímar (60×40 mín) 
Verð: 55.000kr
Tímabil: 5. janúar – 11. mars 2026
Hvenær: mánudaga og miðvikudaga 17:30-19:30
- Námsmat til að fá útskriftarskírteini:
Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu.
- Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla og grunnskóla sem hefur lokið byrjendastigi (A1.1–A1.2) og vill styrkja hæfni sína í að tala, skilja og nota íslensku í daglegum samskiptum við börn, foreldra og samstarfsfólk.
- Markmið:
Markmiðið er að þátttakendur geti tekið virkari þátt í daglegum samskiptum á íslensku, brugðist við mismunandi aðstæðum í starfi og tjáð sig með meiri nákvæmni og öryggi. Lögð er áhersla á skilning, tjáningu og orðaforða tengdan starfi í leik– og grunnskólum.
- Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi atriði:
• samskipti við samstarfsmenn – að biðja um hjálp, ræða daglegt starf og matartíma.
• samskipti við börn – að útskýra, leiðbeina og leysa verkefni saman.
• samskipti við foreldra – að ræða heilsu, líðan og daglegar aðstæður barna.
• líkamslýsingar, heilsutengd orð og hvernig lýsa má vanlíðan og veikindum.
• fallbeygingar, hjálparsagnir og aukinn orðaforði tengdur vinnuumhverfi.
• setningagerð, algengar spurningar og nytsamlegar orðatökur úr daglegu starfi.
- Aðrar upplýsingar:
Kennslan fer fram á einföldu og skýru máli með áherslu á virk samskipti og þátttöku. Notuð eru raunhæf verkefni, leikræn æfing, samræður, myndir og hljóðefni sem tengjast vinnu í leik– og grunnskólum.
Íslenska fyrir skóla- og leikskólastarfsmenn A2.2a-A2.2b
Staðnám/fjarnám
Lengd: 60 kennslutímar (60×40 mín) 
Verð: 55.000kr
Tímabil: 6. janúar – 12. mars 2026
Hvenær: þriðjudaga og fimmtudaga 19:30-21:30
- Námsmat til að fá útskriftarskírteini:
Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu.
- Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla og grunnskóla sem hefur lokið A2.1-stigi í íslensku og vill dýpka þekkingu sína á málfræði, orðaforða og tjáningu sem nýtist í daglegum samskiptum og vinnu með börnum og samstarfsfólki.
- Markmið:
Markmiðið er að efla skilning og tjáningu á íslensku á fjölbreyttan hátt, bæta notkun lýsingarorða, sagna og fallbeyginga og auka hæfni til að nota íslensku á eðlilegan og öruggan hátt í mismunandi aðstæðum.
- Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi atriði:
• lýsingarorð og kyn – að lýsa hlutum, fötum og fólki.
• þolfall og þágufall – að nota rétt form í daglegum setningum.
• notkun sagna: að mega og að geta – leyfi, möguleikar og færni.
• lýsingarorð: búinn og tilbúinn – að tala um aðgerðir og undirbúning.
• tilfinningar og líðan – að tjá tilfinningar og spyrja um líðan.
• sagnir og málfræði í tengslum við starf – að lýsa daglegum verkefnum og ábyrgð.
• endurtekning og orðabanki – gagnleg orð, kennimyndir og algengar spurningar.
- Aðrar upplýsingar:
LLögð er áhersla á raunhæfar æfingar, samræður og verkefni úr daglegu starfi. Notuð eru myndræn gögn, hljóðefni og hópaverkefni til að efla sjálfstraust og virkni nemenda. Kennslan er hagnýt og tengd raunverulegum aðstæðum á vinnustað.
Íslenska fyrir skóla- og leikskólastarfsmenn B1.1 SPJALL NÁMSKEIÐ
Staðnám/fjarnám
Lengd: 60 kennslutímar (60×40 mín) 
Verð: 55.000kr
Tímabil: 6. janúar – 12. mars 2026
Hvenær: mánudaga og miðvikudaga 19:30-21:30
- Námsmat til að fá útskriftarskírteini:
Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu.
- Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla og grunnskóla sem hefur lokið stigum A1 og A2 og vill bæta færni sína í íslensku með áherslu á talmál og virka notkun tungumálsins í daglegu starfi.
- Markmið:
Markmiðið er að efla munnlega tjáningu og skilning á íslensku, bæta flæði í tali og auka hæfni þátttakenda til að nota íslensku sjálfstætt í starfi og daglegum samskiptum. Kennslan fer að lágmarki 70% fram á íslensku, með áherslu á að þátttakendur noti það sem þeir hafa lært í fyrri námskeiðum.
- Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi atriði:
• Morgunmóttaka barna og samskipti við foreldra.
• Matartímar – orðaforði tengdur máltíðum og daglegum aðstæðum.
• Hópastarf og samverustundir – að taka þátt í umræðum og lýsa atburðum.
• Í fataklefanum og útivera – að tala um föt, veður og útivist.
• Að þakka fyrir daginn og kveðjur við lok dags.
• Endurtekning á gagnlegum orðaforða og málfræði sem tengist vinnustaðnum.
• Að nota íslensku til að lýsa eigin reynslu og daglegum verkefnum.
- Aðrar upplýsingar:
Kennslan byggir á raunhæfum æfingum, samtölum, hlutverkaleikjum og hópaverkefnum. Grammatík er kennd í samhengi við þarfir hópsins. Lögð er áhersla á að nota íslensku í samskiptum, skilja talað mál og byggja upp traust í daglegri málnotkun.