- Námsmat til að fá útskriftarskírteini:
Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu.
- Fyrir hverja:
Námskeiðið er framhald af stigi A1.1 og hentar einnig þeim sem hafa þegar öðlast grunnþekkingu í íslensku. Orðaforði er aukinn þannig að þátttakendur geti notað einfaldar setningar sem tengjast daglegu lífi. Viðfangsefni tengjast orðaforða um daglegar athafnir. Lögð er áhersla á tal, hlustun, lestur og skrift, með sérstakri áherslu á daglegt mál og fjölbreyttar kennsluaðferðir. Aukið er við málfræðikunnáttu í tengslum við námsefnið. - Markmið:
Markmiðið er að nota tungumálið með meiri öryggi í einföldum samtölum – að skilja stutta texta og orðasambönd í daglegum aðstæðum. - Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi atriði:
• nafn, heimilisfang,
• almenn kurteisisorð,
• tölur, aldur, klukkuna, tímasetningar
• nútíð, framtíð og þátíð,
• heiti daga og mánaða,
• að versla, verð,
• að koma til Íslands,
• kyn nafnorða og lýsingarorð - Aðrar upplýsingar:
Notuð eru hljóðupptökur, stutt samtöl, tungumálaleikir (t.d. Kahoot, borðspil). Til stuðnings eru heimaverkefni og æfingar í pörum eða hópum notuð.


