- Námsmat til að fá prófskírteini:
Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu. - Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem hafa lokið a.m.kA1.1 og A1.2 þrepi í íslensku eða hafa öðlast sambærilega færni. Það hentar þeim sem hyggjast þreyta íslenska ríkisborgaraprófið í tungumáli og vilja styrkja mál- og samskiptahæfni sína með hagnýtum æfingum og markvissri þjálfun. - Markmið:
Markmiðið er að efla sjálfstæði og öryggi þátttakenda í tjáningu á íslensku, bæta skilning á töluðu og rituðu máli og undirbúa nemendur fyrir íslenska ríkisborgaraprófið með áherslu á hagnýta málnotkun í daglegu lífi. - Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi atriði:
• samtöl og spurningar úr daglegu lífi,
• framburðarþjálfun og myndalýsingar,
• leiknar aðstæður og samræður,
• helstu atriði íslenskrar málfræði með hagnýtu sjónarhorni,
• orðaforða sem nýtist í prófi og í daglegum samskiptum,
• ritun stuttra texta og skilning á einföldum ritgerðum. - Aðrar upplýsingar:
Lögð er áhersla á virka þátttöku, fjölbreyttar æfingar og notkun raunhæfra aðstæðna. Notuð eru hljóðefni, samræður, myndir, upptökur til að auka sjálfstraust og færni nemenda.
