- Námsmat til að fá prófskírteini:
Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu. - Fyrir hverja:
Forkröfur fyrir þetta 20 kennslustunda námskeið eru að nemendur hafi lokið íslensku á stigum 1 og 2 (A1) eða hafi öðlast sambærilega kunnáttu. Námskeiðið hentar þeim sem vilja bæta færni sína í tali, frásögn og framburði í daglegum samskiptum. - Markmið:
Markmiðið er að þjálfa þátttakendur í samræðum og frásögn í mismunandi aðstæðum, skerpa á framburði, setningafræði og grunnmálfræði, og efla orðaforða. Lögð er áhersla á að nota íslensku í lifandi samskiptum og að nemendur verði öruggari í að tjá sig. - Á námskeiðinu verður fjallað um:
• frásögn og samræður í mismunandi aðstæðum,
• þjálfun í framburði og hreim,
• grunnatriði í setningagerð og málfræði,
• orðaforða sem nýtist í daglegu lífi og starfi,
• munnlegar æfingar og frásagnir um áhugaverð málefni,
• fjölbreyttar kennsluaðferðir sem koma til móts við þarfir þátttakenda. - Aðrar upplýsingar:
Kennslan byggist á samtölum, hlustunaræfingum og hagnýtum verkefnum sem tengjast raunverulegum aðstæðum. Lögð er áhersla á virka þátttöku og einstaklingsmiðaða leiðsögn kennara.
