Undirbúningsnámskeið fyrir íslenskupróf vegna ríkisborgararéttar fyrir A2

Undirbúningsnámskeið fyrir íslenskupróf vegna ríkisborgararéttar fyrir A2

Staðnám/fjarnám
Lengd: 60 kennslutímar (60×40 mín)          
Verð: 55.000kr
Tímabil: 6. janúar – 12. mars 2026
Hvenær: þriðjudaga og fimmtudaga 17:30-19:30
Til að taka þátt í þessu námskeiði þarf að hafa lokið A1 þrepi í íslensku eða öðlast sambærilega færni.
  • Námsmat til að fá prófskírteini:
    Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu. 
  • Fyrir hverja:
    Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem hafa lokið a.m.kA1.1 og A1.2 þrepi í íslensku eða hafa öðlast sambærilega færni. Það hentar þeim sem hyggjast þreyta íslenska ríkisborgaraprófið í tungumáli og vilja styrkja mál- og samskiptahæfni sína með hagnýtum æfingum og markvissri þjálfun.
  • Markmið:
    Markmiðið er að efla sjálfstæði og öryggi þátttakenda í tjáningu á íslensku, bæta skilning á töluðu og rituðu máli og undirbúa nemendur fyrir íslenska ríkisborgaraprófið með áherslu á hagnýta málnotkun í daglegu lífi. 
  • Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi atriði:
    samtöl og spurningar úr daglegu lífi, 
    framburðarþjálfun og myndalýsingar, 
    leiknar aðstæður og samræður, 
    • helstu atriði íslenskrar málfræði með hagnýtu sjónarhorni,
    orðaforða sem nýtist í prófi og í daglegum samskiptum, 
    ritun stuttra texta og skilning á einföldum ritgerðum. 
  • Aðrar upplýsingar:
    Lögð er áhersla á virka þátttöku, fjölbreyttar æfingar og notkun raunhæfra aðstæðna. Notuð eru hljóðefni, samræður, myndir, upptökur til að auka sjálfstraust og færni nemenda.