Námsmat til að fá prófskírteini: Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu.
Fyrir hverja: Námskeiðið er framhald af íslensku A1.2 og hentar einnig þeim sem hafa öðlast grunnfærni í íslensku á stigum A1.1 og A1.2. Kenndur er orðaforði tengdur daglegu lífi, veikindum, fjölskyldu, mat og starfi einstaklings. Einnig er lögð áhersla á að kynna íslenskt samfélag. Nemendur efla sjálfstraust sitt í að tjá sig á íslensku með áframhaldandi þjálfun í að tala, skilja, lesa og skrifa íslensku.Í kennslu eru notuð fjölbreyttar kennsluaðferðir. Málfræði er kennd áfram í tengslum við námsefnið.
Markmið: Markmiðið er að geta skilið helstu upplýsingar í einföldum samtölum og tjáð sig sjálfstætt um kunnugleg efni.
Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi atriði: • skóladagurinn, vinnudagurinn, • orðaforði tengdur vinnu, • mismunandi orð yfir mat, • leggja á borð og taka af borði, • að panta mat, • að kaupa mat, • að fara til læknis, líkaminn, • að tilkynna veikindi, • að kaupa lyf, • að geta sagt stuttlega um fjölskylduna sína
Aðrar upplýsingar: Notuð eru hljóðupptökur, stutt samtöl, tungumálaleikir (t.d. Kahoot borðspil). Til stuðnings eru heimaverkefni og æfingar í pörum eða hópum notuð.
Námsmat til að fá prófskírteini: Nauðsynlegt er að ljúka 80% mætingu og taka virkan þátt í tímum til að fá útskriftarskírteini. Í lok námskeiðsins fer fram stutt upprifjun á námsefninu.
Fyrir hverja: Námskeiðið er framhald af íslensku A2.1-A. Lögð er áhersla á að efla orðaforða og tjáningarfærni í daglegum aðstæðum, svo sem tengdum heilsu, þjónustu, frítíma og starfi. Nemendur læra að taka þátt í lengri samræðum, skilja algenga texta og skrifa einfaldar setningar og tölvupósta. Málfræði er kennd í tengslum við námsefnið og námskeiðið veitir jafnframt innsýn í íslenskt samfélag og daglegt líf. Markmiðið er að auka sjálfstraust og sjálfstæði nemenda við notkun íslenskunnar.
Markmið: Markmiðnámskeiðsins er aðþróahæfnitilaðskiljaogtjásig í mismunandiaðstæðumdaglegslífs, meðalannars á vinnustað, í samskiptumviðopinberarstofnanir, þjónustuog í félagslegumsamskiptum. Nemenduræfasig í að nota íslenskubæðimunnlegaogskriflega, meðáherslu á raunhæfaoghagnýtanotkuntungumálsins.
Á námskeiðinu verður fjallað um: • útlit og fatnað • veður og árstíðir • heimili, húsgögn og flutningar • sagnir – 1. og 2. Regla, nútíð og þátíð + þolfall • áhugamál og tómstundir
Aðrar upplýsingar: Í kennslunni eru notuð hljóðefni, stutt samtöl, tungumálaleikir (t.d. Kahoot borðspil). Til stuðnings eru heimaverkefni og æfingar í pörum eða hópum notuð.